Fyrsti í meistaramánuði!

Jæja þá er komið að því og ég er frekar spennt verð ég að viðurkenna, sérstakleg að sjá hvort og þá hvernig þetta á eftir að breyta lífi fólks, ég vona innilega að þetta muni hafa góð áhrif á marga. Ég las einhvers staðar að það tæki 21 dag að losa sig við slæma ávana og taka upp heilbrigðari í staðin, svo þessir 30 dagar ættu að koma mörgum á góðan stað í heilbrigðu líferni!

Ég ákvað eins og hægt er að lesa hér að neðan að bæta 30 hlaupum og 3*30 æfingum við æfingaprógrammið mitt. Aðal ástæðan fyrir þessu er sú að mig langar að sjá hvernig áhrif svona dagleg hlaup án hvíldardaga hafa á mig, og svo held ég að þetta sé mjög gott upp á andlegu hliðina, s.s að venja sig á að gera eitthvað á hverjum degi án þess að fá ógeð! haha :D
Auk þess mun ég klifra 2-3 í viku, lyfta eftir þær æfingar og taka 1 stk hjólaæfingu í viku, og svo bara hlusta á sjálfa mig og hvað mig langar að gera (sem er NB númer 1 2 og 3). Svo hugsa ég að ég haldi mig nú bara við allar hinar heilsurútínurnar mínar :D

Ég fékk sjokk að heyra það í gær að ein af bestu vinkonum mínum kynni ekki að búa til neitt hollt og gott úr hakki!!! ( You know who you are ;) haha) svo ég ætla að skella inn uppskrift sem ég bjó til fyrir löngu síðan og er uppáhalds. Ég geri svona reglulega og fylli frystinn. Þetta eru kjúklingabollur, sem geymast vel í frysti og snilld að eiga til að skella í nestistboxið sitt :)

1 kg hakk
2 dl haframjöl
2 egg
2 tsk sinnep (helst sterkt og NEI ekki pylsusinnep ojj)
FULLT af ALLS konar kryddum (chilli, karry, svartur pipar, salt- allt sem ykkur dettur í hug. Ég set ca. 1/4-1/2 tsk af svona 4 mismunandi kryddum)
2 hvítlaukrif (rifið)
1 rauðlaukur eða púrrlauk
1/2 mjög smátt skorið epli

Öllu skellt saman í skál, hræra saman með höndunum (ekki hræra of mikið, bara blanda þessu saman), setja bökunarpappír á plötu, búa til bollur (ca hálf hnefastærð hjá mér amk) og raða þeim snyrtilega á plötuna.. inn í ofn við 180°C í ca 25-30 mín og volai! Passar eiginlega með öllu bara, en þó sérstaklega með góðu salati og avakado ;).

En nóg um það! Ég ætla að fara að gera eitthvað af viti, eins og að undirbúa æfingar dagsins, ferð okkar á matarmarkaðinn og matargerð!

Knúskveðja frá oslo,
HelgaM

The greatest wealth is health. ~Virgil


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband