Færsluflokkur: Lífstíll

Fyrsti í meistaramánuði!

Jæja þá er komið að því og ég er frekar spennt verð ég að viðurkenna, sérstakleg að sjá hvort og þá hvernig þetta á eftir að breyta lífi fólks, ég vona innilega að þetta muni hafa góð áhrif á marga. Ég las einhvers staðar að það tæki 21 dag að losa sig við slæma ávana og taka upp heilbrigðari í staðin, svo þessir 30 dagar ættu að koma mörgum á góðan stað í heilbrigðu líferni!

Ég ákvað eins og hægt er að lesa hér að neðan að bæta 30 hlaupum og 3*30 æfingum við æfingaprógrammið mitt. Aðal ástæðan fyrir þessu er sú að mig langar að sjá hvernig áhrif svona dagleg hlaup án hvíldardaga hafa á mig, og svo held ég að þetta sé mjög gott upp á andlegu hliðina, s.s að venja sig á að gera eitthvað á hverjum degi án þess að fá ógeð! haha :D
Auk þess mun ég klifra 2-3 í viku, lyfta eftir þær æfingar og taka 1 stk hjólaæfingu í viku, og svo bara hlusta á sjálfa mig og hvað mig langar að gera (sem er NB númer 1 2 og 3). Svo hugsa ég að ég haldi mig nú bara við allar hinar heilsurútínurnar mínar :D

Ég fékk sjokk að heyra það í gær að ein af bestu vinkonum mínum kynni ekki að búa til neitt hollt og gott úr hakki!!! ( You know who you are ;) haha) svo ég ætla að skella inn uppskrift sem ég bjó til fyrir löngu síðan og er uppáhalds. Ég geri svona reglulega og fylli frystinn. Þetta eru kjúklingabollur, sem geymast vel í frysti og snilld að eiga til að skella í nestistboxið sitt :)

1 kg hakk
2 dl haframjöl
2 egg
2 tsk sinnep (helst sterkt og NEI ekki pylsusinnep ojj)
FULLT af ALLS konar kryddum (chilli, karry, svartur pipar, salt- allt sem ykkur dettur í hug. Ég set ca. 1/4-1/2 tsk af svona 4 mismunandi kryddum)
2 hvítlaukrif (rifið)
1 rauðlaukur eða púrrlauk
1/2 mjög smátt skorið epli

Öllu skellt saman í skál, hræra saman með höndunum (ekki hræra of mikið, bara blanda þessu saman), setja bökunarpappír á plötu, búa til bollur (ca hálf hnefastærð hjá mér amk) og raða þeim snyrtilega á plötuna.. inn í ofn við 180°C í ca 25-30 mín og volai! Passar eiginlega með öllu bara, en þó sérstaklega með góðu salati og avakado ;).

En nóg um það! Ég ætla að fara að gera eitthvað af viti, eins og að undirbúa æfingar dagsins, ferð okkar á matarmarkaðinn og matargerð!

Knúskveðja frá oslo,
HelgaM

The greatest wealth is health. ~Virgil


Pizzakvöld prótínfíkilsins

Var beðin um uppskrift af hollri pizzu og ákvað að skella þessu hérna inn líka. Áhugafólk um pizzugerð og hollustu ætti að prófa þessa uppskrift,hún er alveg glúteinlaus og full af hollustu.

Prótín-Pizzabotn
4-6 eggjahvítur (má nota 1 egg og 4 hvítur t.d)
Krydd
Steikja á pönnu alveg í gegn (ég nota ekki olíu), setja eitthvað pizzatengt dót ofan á (sósu, ost, kjöt o.s.frv.)

Stundum set ég líka í botninn-
Rifið blómkál (2 dl)
Smá haframjöl (1/2dl)
Rifið grasker
Rifið brokkolí
Rifið eitthvað sem mér dettur í hug

Prótín-pizzaálegg (steikja á pönnu)
Hakk
Niðursoðnir tómatar (með chillibragði t.d)
Rifinn hvítlaukur
Krydd (chilli, oregano t.d)
Tómatpúrra (1tsk)
Rauður laukur, maís eða hvað sem er sem þér finnst gott

Inn í ofn á 200°C, þangað til osturinn lítur út eins og þið viljið hafa hann!! Lofa ykkur að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum með þessa :D


Aaaaand another weekend!

Sko það er bara að koma föstudagur aftur! Föstudagur-mánudagur-föstudagur-mánudagur.. svona virðist tíminn fljúga bara!

Búið að vera nóg að gera í vikunni og ég er farin að hlakka til að fá helgarfrí :) ætlum að fara í eitt stk langa skógargöngu að minnsta kosti og svo auðvitað förum við í Grönland að kaupa grænmeti :D ég eeeeelska markaðinn þar, allt fullt af alls konar grænmeti og ávöxtum og hnetum og kryddum og og og ódýrt í þokkabót (miðað við venjulega verslanir) auk þess sem það er alltaf fullt af alls konar fólki að versla þarna um helgar (og rétt hjá er annar markaður sem selur að ég stolið góss, amk eru sölumennirnir frekar dúbíus), stemning.is.. verður spennandi að sjá hvað ég enda á að kaupa og elda um helgina :P

Svo er Meistaramánuðurinn að byrja á laugardaginn og ég er farin að hlakka mega til að byrja á prógramminu mínu og sjá hvað ég endist. Er búin að plana þetta allt og undirbúa (í huganum amk) svo þetta ætti ekki að geta klikkað - If you fail to plan, you plan to fail!

Annars er ég að vinna í því að sjálfmennta mig í notkun á tölvuforriti sem heitir Matlab og á það víst til að gera ýmsa fræðinga brjálaða.. Það er hægt að læra endalaust á þetta, milljón bækur verið gefnar út um forritið (m.a. Matlab for dummies :O ætti kannski að kaupa hana!)svo við vonum að ég komist heil í gegnum þetta sjálfsnám mitt haha

Fyrir utan það einkennast dagarnir núna af því að læra-æfa-elda-þrífa-sofa og þetta á repeat.. En við skulum vona að það fari að kólna og snjóa svo ég geti bætt - skíða og ísklifra þarna inn :D

Knúskveðja frá Oslo!
HelgaM


Góðir dagar hrúgast inn!

Góóóóðuuur dagur! Sofnaði allt of snemma í gærkvöldi og var því komin á fætur klukkan rúmlega 4 í morgun (I know, I know crazy A manneskjan! er nú yfirleitt ekki að vakna fyrr en kl 5 samt) En það er svo næs að vakna snemma og vera búin að koma ýmsu í verk (og leggja sig í 20mín) áður en ég þarf að fara af stað :) mætt í skólann fyrir 8 og búin með skýrslu fyrir 11 og byrjuð á öðru verkefni fyrir hádegismat : GÓÐUR morgun!

Fór svo í ræktina á hlaupaæfingu eftir hádegi, mér finnst nú yfirleitt ekki gaman að hlaupa inni en ég er að reyna að venja mig við það :) og það var bara mega gaman! Tók sprettæfingu og svo brekkuspretti, held að fólk hafi haldið að ég væri pínu skrítin þegar ég byrjaði að spretta á tækinu með hallann í 8.5 en NÆS var það :D

Núna eru 3 dagar í að Meistaramánuðurinn byrji, þeir sem vita ekki hvað það er ættu að kíkja hingað : https://www.facebook.com/event.php?eid=161027593987552&ref=ts .. Ég og AnnaG vinkona mín ætlum að taka vel á því í 30 daga! Ég er búin að búa mér til plan sem lítur svona út =
30 dagar, 30 hlaup, lágmark 30 mínútur hvert OG
30 dagar 30 æfingar af 3 mismunandi æfingum (hnébeygjur, axlapressur og KB swing) leyfi ykkur að fylgjast með hvernig það mun ganga hjá mér :D

Ég er búin að vera að hugsa mikið um lífið og tilveruna að vanda.. og það sem er efst í huga mér þessa daga er að njóta þess bara að vera á lífi og að vera hérna í nútíðinni. Er að glugga í mjög áhugaverða bók og kafli sem ég las í henni í gær fjallar m.a. um plöntur og dýr. Þar segir rithöfundurinn m.a. að ástæðan fyrir tilveru þörunga virðist bara vera: að vera til. Ótrúlega mikið til í þessu eitthvað, við mannskjan þurfum alltaf með framtíðarplön og vera að stefna eitthvað (ekki misskilja mig,það er mjög gott að stefna eitthvert!) en það virðist ekki vera nóg fyrir okkur manneskjuna bara : að vera til.
Ég ætla að reyna að eiga svona tíma annað slagið þar sem það er bara nóg fyrir mig : að vera til!

Knúskveðja,
HelgaM


Aftur mánudagur?!

Já þeir virðast bara koma og fara mánudagarnir og það er alltaf helgi! Ekki nema sex vikur í próf og svo er bara komið að því að skila mastersritgerðinni (á örugglega eftir að líða eins og ein vika ég get svo svarið það!). En það er ekkert annað að gera en að reyna að nýta tímann í eitthvað skemmtilegt og áhugavert, og það reynum við að gera á þessu heimili ;)

Það var awesome gaman hjá okkur á æfingu í gær og veðrið alveg til fyrirmyndar! Mamman hljóp í hringi á meðan Alex var að leika við litlar stelpur og kenna þeim að sippa og taka spretti.. litli íþróttakennarinn sko!

Var núna að detta inn af klifuræfingu með Thomasi vini mínum, á því svoldið erfitt með að skrifa á lyklaborðið þar sem fingurnir á mér verða alltaf frekar stirðir (og feitir) eftir æfingar með honum (hvergi slegið af og stelpan pínd upp alla veggi!)
Mæli með að fólk kíki á þetta video og drífi sig svo út og klifri í trjám! Ég ætla a.m.k. að taka eitthvað af þessum æfingum inn í mína rútínu ;) http://www.fifth-ape.com/blog/2011/9/15/check-out-our-awesome-video.html

Nóg um það, ég ætla að drífa mig út og sækja litla íþróttaálfinn, fara í búð og elda svo kálböggla =
Hakk
Spínat
Epli
Rauður laukur
Hvítlaukur
Egg
Parsley
Papriku-krydd
Sjávarsalt
Svartur pipar
Öllu skellt saman í skál og hræra saman.
Hita hvítkálsblöð í heitu vatni í ca 20 sek, pakka svo 'deiginu' inn í blöðin og setja í ofnfast form.
Búa svo til sósu úr einhverju (niðursoðnir tómatar, kókosmjólk, basil, svartur pipar og kjötkraftur t.d) og hella yfir.
Inn í ofn, 180°C í 20-30 mín og svooo BORÐA nammnamm

Munum svo að hver dagur bíður upp á tækifæri til að byrja upp á nýtt, svo - Just go out there an give it your best!

Osloknús!
HelgaM


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband