Færsluflokkur: Bloggar

Morgunverkin

Svaf út í morgun og var ekki komin á fætur fyrr en klukkan 7! SJÖ!! (Sem er mikill munur frá gærdeginum og flestum öðrum dögum þar sem ég er vöknuð fyrir klukkan 5) ég rétt náði að sjá sólarupprásina :) mjög falleg í morgun þar sem það er smá þoka yfir Oslo.. alltaf góð byrjun á deginum að borða hollan morgunmat og horfa á sólarupprásina :D

Talandi um hollan morgunmat þá var ég að prófa svoldið nýtt. Eftir að hafa lesið mikið um kókosmjólk þá er hún mætt inn í matarræðið mitt (hef alltaf haft kókosolíuna inni samt) svo listinn leit svona út í morgun =

2 eggjahvítur
2 msk kókosmjólk
1.5 dl Grasker (rifið niður)
1 msk af fræjum
Kanill
Steikt á pönnu og svo setti ég stappaðann banana og 1/2 dl af bláberjum ofan á og lokaði.. jááááhh þetta fer á GÓÐA-morgunmata-listann minn! Mæli með ;).

Haldið þið að upphýfingarstöngin hafi ekki slegið í gegn hjá okkur! Það var rifist um að fá að hanga á henni í gær :D. Í byrjun þurfti ég að lyfta Alex endalaust upp á hana en eftir að hafa gefist upp á því sagði ég við hana að ef hún vildi nota hana yrði hún að finna leið til að komast sjálf upp! hahaha og hvað haldið þið? Jújú hún fann leið til að komast upp sjálf!! (skelli inn mynd eða video af þessu fljótlega).

Sunnudagur með frábæru veðri framundan svo við ætlum að fara upp á hlaupavöll að taka fullt af sprettum og hoppa eitthvað :)

Óska ykkur öllum frábærs sunnudags!


Fjárfesting eða peningaeyðsla?

Vá hvað ég elska markaði! Sérstaklega þegar þeir selja grænmeti/ávexti/krydd og baunir! Var að enda við að ganga frá fullum bakpoka og 4 innkaupapokum af slíku dóti núna beint frá 'Gronland Frugt og gront marked' :D er svo að fara í það að undirbúa næstu viku með því að elda mat og skera niður grænmeti (júhú skipulag!)

En ég ætlaði nú ekki að beint bara að segja frá því.. ég var nefnilega í fjárfestingarleiðangri/peningaeyðsluleiðangri þar sem ég keypti mér tatata upphýfingarstöng! Jújú þið heyrðuð rétt og hérna er mynd af gripnum http://www.gmax.no/produkt/124756(BC_1)/casall-multi-chin-up-bar/ verður gaman að sjá í hvora áttina þessi kaup munu hallast... Planið er a.m.k. að nota þetta reglulega þar sem það er farið að kólna úti og því ekki eins auðvelt að æfa hérna í kringum húsið. Svo núna verður hangið (og á endanum gerðar upphýfingar vonandi!)
Plús ég hugsa að Alex eigi eftir að nota þetta mikið! Það er í miklu uppáhaldi hjá þeim stelpunum að leika sér á 'hengestengene' í skólagarðinum :)

En nóg um það, ég ætla að skella mér í eldamennsku og bökun! Ætla að baka 'súkkulaðikökur' sem við köllum svartbaunabránís hérna og innihalda:
400 gr svartar baunir (soðnar ofcourse)
2 þroskaðir Bananar
1 msk kanill
1 msk hunang
1 tsk vanilludropar
1 dl Haframjöl
? Ferskar döðlur -steinninn (setti ca 6 en má skipta út fyrir t.d dökkt súkkulaði, rúsínur eða hvað sem ykkur dettur í hug)
Allt saman í skál og töfrasprota þetta saman, drífa (áður en þið klárið deigið) þetta svo í smurt form (eða silikonform) inn í ofn í 35 mín við 175°C...
NammNammNamm og má borða kvölds og morgna EN smakkast eins og brownies. óóhh haaaaamingja :)

Knús!
HelgaM


Number uno

Jæja þá er ég mætt (aftur) í bloggheiminn. Smá vegna beiðna frá fólki sem langar að fylgjast með og fá uppskriftir ;), eeen samt aðallega svo fjölskylda og vinir sem sitja heima á Íslandi á meðan ég er í Oslo fái fréttir af mér.

Svo kannski til að deila upplýsingum um stærstu áhugamálin mín, fyrir þá sem hafa áuga á slíku. Mér finnst fátt skemmtilegra en að æfa/hreyfa mig og borða hollan mat, en það sem kemur fljótt á eftir á þeim lista er að lesa um æfingar og hollan mat (og búa til mat). Svo ég mun skrifa mikið um slíkt hérna (og líka slúður ef eitthvað er!)

Læt þetta duga í bili þar sem ég ætla að fara að vesenast í stórborginni Oslo (blár himinn og 10 stiga hiti : næææs!)

Knúskveðja :*
HelgaM


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband